|
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 21 febrúar
|
28.01.2008 22:38:08 / Steiney
Jahá... Ég er sko löt í þessu.. En það sem er núna er að ég er komin aftur á vistina og er það æðislegt... Er aðalega bara inni á kvöldin, horfandi á sjónvarpið eða lærandi og fer nú afogtil á rúntinn Það er nebbla eitt það skemmtilegasta sem ég geri, skil alls ekki afhverju sitjandi í bíl hring eftir hring HAHA En já ég er alveg að standa mig í náminu, eða vona það.. Ætlaði að skrá mig úr sögu um daginn en fór aldrei að gera það, þannig ég hætti að mæta og er semsagt búin að skrópa nokkuð oft.. Sem er ekkert ofursniðugt. En ég fór og talaði við Friðgerði áfangastjóra í dag og sagði hún að ég ætti endilega að halda áfram þó ég væri búin að missa svona mikið úr, ég næði þessu á endanum og mætingin kæmi smátt og smátt inn En má helst ekki skrópa neitt því þá er ég dottin úr áfanganum.. Annars er ég að mæta í tímana og læra en skil alveg ómögulega þessa helvítis stærðfræði, það skilur hana enginn held ég bara..  En ég skellti mér á Þorrablótaballið á föstudaginn og var ekkert smá gaman, við Berglind vorum bara mjög svo léttar á því, hún er núna byrjuð með Danna Midgley sem er æðislegur strákur hef ég heyrt og er það bara yndislegt fyrir hana Fórum svo í fyrir og eftirpartý hjá Bjarna afmælisbarni í Sigurðarbúð og var það ekkert smá gaman Get sko ekki beðið eftir næsta balli... Jamm laugardagurinn fór ekki í þynku eins og ég bjóst við hann var bara skemmtilegur og hress Um kvöldið kíkti ég aðeins á rúntinn og Dýrleif gella kíkti á okkur og endaði það með að hún gisti Awesome það sko En já ég fór svo bara upp á vist að glápa á tvið og msn, átti skemmtilegt spjall við ákveðinn aðila, takk fyrir það:* Síðan bauð Hafrún mér á rúntinn með þeim um 3 leitið og var það stuð sko, keyrðum eina fyllibyttu út í Hnífsdal í brjáluðu veðri.. Var það snilld sko, ég hitti ekki, þetta verður að smella, og ég náði að hitta í rétt gat.. Eitthvað svona var hann að segja við mig þegar hann var að spenna sig í beltið, hefði sko mátt miskilja þetta Þetta var stuð.. Svo í gær leigðum við okkur stelpurnar DVD og skemmtum okkur ekkert smá vel.. Er haggi Salvör.. Svo gistum við Salvör saman, sem var æðislegt, alltaf stuð hjá okkur.. Við fukum í gær ekkert smá gaman, þurftum að bíða eina hviðu við Samkaup til að komast að Hamraborg og að bílnum, hefðum annars bara fokið eitthvað út í rassgat.. Haha ég er alltaf jafnklikkuð og var að biðja alla að koma út í labbitúr í gærkvöldi í þessu veðri, það er svo gaman að fjúka.. Ég fékk nýleg skíði gefins um daginn og er að deyja langar svo að fara að prófa þau, skíðasvæðið er yfirleitt opið þessa dagana, bara að finna einhvern með mér á skíði, langar samt soldið mikið á bretti líka Held að það sé ennþá skemmtilegra... En ætla að enda þetta blogg, endilega skiljiði eftir loppufar í gestó eða komment Elska ykkur öll.. -SteineyNinna sem vonar að óskin hennar fari nú að rætast  Enda þetta samt með einni mynd á föstudaginn á ballinu Mér var sagt að leik tígristír og endaði það svona

»
02.01.2008 18:52:16 / Steiney
Jæja þá er 2. janúar 2008 kominn Ekkert smá fljótt að líða allt get ég sagt... Núna á morgun fer ég aftur á vistina og get ég ekki beðið eftir að komast þangað, búin að telja niður síðan ég kom heim.. Það er ekkert eiginlega að frétta af mér, bara búin að vera í jólafríi fór að vinna í 4 daga og var það bara nokkuð fínt, var með Berglindi og alles.. Jólin komu fljótt og voru fljót að líða, allt í einu voru komin áramót sem var bara æðislegt, styttist í 17 ár Annars er ég sko ekki búin að eiga 7 dagana sæla undafarið.. sem er ekki búið að vera neitt sniðugt kannski, er búin að vera með móral við flest allt fólkið mitt hérna, tolli ekkert heima vill bara vera úti, helst á rúntinum á ísó Ég er soddan rúntmanneskja.. Svo er tölvan mín búin að vera í hakki eða aka msnið og var ég sko ekki sátt, hún fór í formötun og kom skárri úr henni, samt er ekki að fýla að ég þarf alltaf eða stundum að connecta til að opna síður ekki sátt með það Er líka föst aftur í borði 45 í FKN Bubble Struggle 2, því tölvan var förmötuð og saveið eyddist út Not kúl... Svo undafarið hef ég komist að því hverjir eru vinir í raun og hverjir ekki, sumir eru alltaf til staðar en aðrir bara þegar þeim henntar og líkar mér það ekki Finnst að vinir eigi alltaf að vera til staðar fyrir hverja aðra kannski er það bara ég en svona er mín skoðun.. Jólafríið mitt er meira og minna búið að vera sofa, msn og horfa á friends, hef verið að sofa allann daginn og er ég bara uppi í rúmi allan daginn og kvöldið líka nema að ég fari út á rúntinn Fór í 2 mjög skemmtileg og skrautleg partý í jólafríinu og var það mjög gaman Freyja er farin suður, flutt semsagt og var ég með henni, Viðari og Kolbrúnu um daginn á ísó, eða Kolbrún var nú voða stutt hjá okkur og Arnar kom í staðinn, við Freyja fórum bara út að labba í skítakulda og logni en það var soldið hressandi Svo eitt kvöldið kom sá ólíklegasti í gríni á Þingeyri, ætlaði aldrei að koma aftur á þetta skítapleis og alles en leiddist og rúntaði bara yfir... Svo komu áramótin.. Ég fór um morguninn á ísó að kaupa flugelda og var eitthvað að stússast þar sem var fínt bara Kom svo heim hitti Öldu og co og fór heim að sofa um 2 og svaf til hálf 6 þá fór ég í kvöldmat.. Svo fórum við að sprengja og svo fór ég í fyrirpartý eða innflutningspartý sem var mjög gaman, góð bollan og sollis.. Fór síðan á ball með mömmu hitti Hildi mína þar og svo kom Berglind, vorum við þarna bara góðar, kynntist ég svo Ingu Sif sem er æðiselg stelpa, var helling að tala við hana.. Eftir ballið fór ég í eftirpartý sem var snilld, fór með Guðrúnu Ástu og Bjarna og var bara geggjað stuð Sumir fullari en aðrir og alles En núna í gær og í dag er ég bara búin að sofa og tjilla heima á netinu glápandi á friends með hnakkanum Elska þessa vini mína Svo í gærkveldi fór ég bara að rúnta með Elínu Björgu fórum síðan heim til hennar að fá okkur að borða og horfa á Fóstbræður Svo bara aftur á rúntinn.. En ætli kvöldið í kvöld verði ekki bara að fara í ljós og síðan pakka mig niður því ég fer á vistina á morgun.. LOKSNIS... En læt þetta duga í bili, ætla að verða duglegri að blogga... Enda þetta á mynd.. 
á jóladag held ég... 
Líka á jóladag.. En læt þetta duga í bili, ætla að verða duglegri að blogga...
»
04.12.2007 15:23:51 / Steiney
Jæja er ekki að nenna að blogga en geri það fyrir hana ÖnnuLóu vinkonu Mér finnst svo skrítið að það eru bara 20 dagar í aðfangadag, ommægat, 20 dagar í að maður sitji hjá ömmu að opna alla pakkana og vika í að maður fer til RVK að versla og versla og versla.. Annars er bara vika í að jólafríið mitt byrjar og hlakkar mig sko til, og verð í fríi fram í janúar, það er lærdómsfrí því ég fékk vinnu í frystihúsinu En það hefur ekkert verið að gerast undarfarið nema kannski undirbúningur fyrir próf.. Svo var 1.des á föstudaginn og var það skrautlegt kvöld, hékk bara daginn eftir skólann og gerði mig svo til og fór á 1.des matinn og borðaði og hafði gaman, síðan fórum við í afmælispartý til Gumma J og var það snilld, það var svo gaman allavegna fyrir mig, kannski ekki alla aðra.. Þegar við fórum úr partýinu þá var farið á ball og skemmt sér þar og síðan bara rúntað Var á rúntinum til 4-5 með Hemma Æði.. Síðan fór ég upp á vist og vorum við í Hafrúnar herbergi að tjilla, ég, berglind, hafrún, salvör, óli, snorri og Gulli, held það hafi ekki verið fleiri.. Síðan á laugardeginum fór ég heim með mömmu og létum við upp jólaljós hjá ömmu og svo hjá okkur.. Ekki nennti ég að hanga heima á Þingeyri þannig ég fékk far með Viðari, það var víst skelfilegt fyrir þá að ég hafi beðið um að koma með, en hann hefði bara getað sagt nei.. Allavegna fór ég á Ísó og var ég að tjilla þar á rúntinum, ekki var pláss fyrir mig hjá Snorra þannig ég var bara með Arnari og Dodda og var það gaman, síðan kom Hafrún og enduðum við bara öll heima hjá Arnari þangað til Viðar ákvað að fara heim... Og á sunnudaginn var bara slappað af þangað til ég fór á Ísó, þá fór ég bara á rúntinn og svo upp á vist að læra undir próf.. Um nóttina komu Óli, Gulli og Danni Fabio inn til Hafrúnar og endaði þessi nótt skrautlega, fannst ekki taka því að fara að sofa í 2klst fyrir próf þannig ég vakti bara til þess að vera viss um að ég myndi ekki sofa yfir mig, og endaði ég þessvegna ein með Óla, Gulla, Gumma J og Danna Fabio.. En þetta var bara gaman Svo í gær fór ég bara í próf og svaf svo allan daginn og út á rúntinn sem var mjög gaman síðan þegar ég kom upp á vist sofnaði ég nú bara strax eitthvað sem ég er byrjuð á að gera sofna bara um leið og ég leggst upp í rúm.. Svo núna ligg ég bara ennþá á náttfötunum uppi í rúmi bíðandi eftir því að geta farið að sofa í kvöld, ekkert að gera hérna enginn nennir út og mig sem langar svo í súkkulaðibitakökku í GamlaBakaríinu.. En læt þetta gott heita í bili, gaman væri að fá komment á þetta blogg.. -SteineyNinna
»
22.11.2007 19:03:05 / Steiney
Jæja kannski tími á smá bloggerí.. En jamm, það hefur nú ekkert verið að gerast hérna hjá mér.. Er bara búin að vera að rúnta, hanga inni eða reyna að læra undir próf, sem er ekki alveg að ganga þarf að fara að taka mig á.. Annars eru núna hlutapróf III í gangi og gengur mér svona skítsæmilega.. Er að fara í íslenskupróf á morgun úr grafarþögn og er ég ekki alveg búin með bókina ekki nógu sniðugt.. Það er bara vika eftir af skólanum þá byrja lokaprófin, og er soldill mikill kvíði kominn í mig um að ná prófunum, er sko alveg viss um að ég falli í nát103 en ég ætla að ná henni.. Svo 11 des er síðasta prófið mitt og fer ég fljótlega eftir það suður með mömmu og ömmu í jólaverslunarleiðangur sem mér er sko byrjað að hlakka til er ekki búin að fara í bæinn svoo lengi, og hún Hildur sætasta kemur sennilegast keyrandi með okkur vestur mér hlakkar sko til.. Haha má svo ekki gleyma að á föstudaginn keyrði ég útaf það var sko ekki sniðugt hjá mér.. í fyrsta sinn að keyra með mömmu yfir á ísafjörð í æfingarakstri og keyri ég svo ekki bara útaf jahá hún brussan ég... Svo í gær átti hún Berglind Inga sætasta mín afmæli og er hún því orðin sweet sixteen.. Æðislegt að fá hana í þennan aldur hihi Er hérna að blogga í hennar tölvu því ég var svo kærulaus að ég barasta gleymdi tölvunni minni í bílnum eftir að ég var í netheimum að láta laga takkann sem datt af í gær.. Annars er að koma helgi föstudagur á morgun og fynnst mér eins og það hafi verið mánudagur í gær svo fljótt að líða þessi blessaði tími.. Það er ekkert planað um helgina, ætli hún verði ekki bara tekin rólega.. vonandi verður pítsapartý hjá okkur á morgun ef ákveðinn aðilli er til sem yrði bara geggjað, því við Hafrún eigum gjafabréf í Hamraborg á 15" pítsu og 2l gos.. sitthvort sko Annars er að pæla að láta þetta gott heita í bili, var beðin um að blogga og bara dreif í því.. Ekkert annars búast við bloggi strax held ég, er ekki alveg að standa mig með þessa síðu En er farin að tékka á þvottinum mínum niðri í þvottahúsi..
»
08.11.2007 18:42:04 / Steiney
jamm.. langt síðan maður hefur bloggað,
kann það bara ekki og er voðalega löt
En það hefur ekkert verið að gerast hérna undafarið hjá mér, bara
vera á chillinu og sollis, hlutapróf II búin í skólanum, eða
síðasta er á morgun
En á ísafirði er sko ekkert eiginlega hægt að gera, þetta verður
örugglega þriðjakvöldið mitt í röð sem ég er ekkert að gera, hanga
bara inni og gera ekki neitt Eitthvað sem er sko ekki ég..
ég vil vera úti að gera eitthvað, er ekki að nenna að hanga ein
inni í pinkuponsu litlu herbergi að gera ekki neitt, nema horfa á
tvið eða hanga í tölvunni....
Samt er eitt mjög gott við ísafjörð maður er alltaf að eignast
fleiri og fleiri vini, alltaf að kynnast þeim betur og betur að mér
líkar það sko
Annars er ekkert planað á helginni, vonandi
verður hún skemmtileg, magga rós er að koma yfir frá patró og
alles æðislega gaman að hitta hana, hef ekki hitt hana síðan í
ágúst, og þá var ég að vinna þegar ég hitti
hana
En læt þetta gott í bili og endilega
kommentið hvort þið farið á tiesto og hvort ykkur hlakkar til
jólanna
»
19.10.2007 23:14:40 / Steiney
Loksins kom langa helgin í skólanum.. Jibbý jeii.. En það er ekkert eiginlega í fréttum nema það að allir ég sagði ALLIR eru í burtu, næstum allir vinir mínir eru í Reykjavík eða á Akureyri. Ég veit um tvær vinkonur mínar á Ísafirði og einn strák þar sem ég þekki.. Ekki sniðugt.. Svo aðalið þá er ég SEXTÁN ára í DAG... Finally, sweet sixteen.. Og ofcourse fór ég í ökutíma í dag hjá honum kitta muggs og var það bara nokkuð fínt sko, og ef ég á að segja sjálf frá þá er ég bara nokkuð fínn driver meðað við að ég hélt að ég gæti þetta ekki Ekkert svo sniðugt.. En hann byrjaði bara á að láta mig keyra til Hnífsdals, svo rúntað um Ísafjörð farið svo inn á flugvöll og rúntað meira á ísó.. Svo tókum við 10 mínútna pásu og fórum svo aftur aðeins á rúntinn á ísafirði svo bara keyrði ég heim, já ÉG keyrði heim á Þingeyri þótt ótrúlegt sé, er bara ekki alveg að meðtaka þetta.. En mér gekk bara mjög vel, fór í gegnum göngin og mætti bílum og fór í útskot, ekkert smá gaman. Kitti kemur aftur á sunnudaginn og þá fer ég í annan tíma.. Hlakka ekkert smá til..
Annar á morgun er ég að hugsa um að vera bara dugleg að læra og svo fer ég á Suðureyri með mömmu og ömmu, loksins að fara til Öldu og Hafliða og SigríðarSvölu og ÓlafsBenónýs, loksins segi ég nú bara, er komin með fráhvarfseinkenni er ekki búin að hitta þau svo lengi, fæ líka að sjá nýja húsið og solliz.. Mamma og Amma eru að fara í afmæli og held ég að ég fari með þeim í það, allavegna eitthvað smá.. Svo annað var í rútunni í dag á leiðinni norður og byrjar helvítis Bretinn ekki bara að reka mig í belti sem ég átti einfaldlega bara eftir að fara í, svo hringir síminn og var það hann pabbi minn og var bretinn ekki bara að skamma mig fyrir að tala í símann, alltaf að gefa eitthvað hljóð sem var uss og eitthvað meira, en auðvitað hlustaði ég ekki á hann og hélt auðvitað áfram að tala í símann. Svo komu tvær stelpur í rútuna á Flateyri og byrjaði hann ekki bara að skamma þær fyrir að tala segjandi uss við þær og sollis.. Greinilega ekki í lagin með kallin, enda vita það allir nema hann... En læt þetta gott í bili og væri gaman að fá komment..
»
13.10.2007 13:31:32 / Steiney
Jæja kannski er kominn tími til að blogga.. En það er eiginlega ekkert búið að vera að gerast hjá mér, bara þetta venjulega skóli og meiri skóli. Í gær þegar ég var að fara í frímínútur var ég að koma niður og var að setjast sá ég hana Hildi, já ég sagði HILDI, hún ákvað að koma okkur surprise og kom með flugi og hitti okkur. Við vorum með henni allandaginn og fór hún með okkur á jetsky. En það var allavegna geggjað að sjá hana og hitta En eitt af því skemmtilegasta sem að ég hef gert gerði í ég gær Viti menn að ég fór á Jetsky og var það geggjað, svo vildi ég meira þannig að ég fór á gúmmíhring eða hvað sem þetta heitir, og var það bundið við jetskyið og var ég á því og var það geggjað, datt bara tvisvar sinnum út í sjó á bólakaf. Mér finnst sko ekkert fyndið hvað tíminn er fljótur að líða, það er alltaf helgin fynnst mér sem er náttúrulega mjög gott og gaman, en það eru að koma jól og er það geggjað.. Í gær var ekkert mikið gert nema skólinn og jetskyið, ég sofnaði eftir það og gerði mig svo reddý fyrir að gera eitthvað um kvöldið, en það var ekkert um að gera, við fórum bara eitthvað á rúntinn og svo heim til Sunnevu sem var mjög gaman Held allavegna að Óli hafi skemmt sér mjög vel... Svo fórum við út á röltið með helling af krökkum og á Jói flateyri afmæli í dag og er 18 ára, var sungið fyrir hann á miðnætti.. Svo fór ég bara upp á vist og var það fínt, leiddist ekki eins og ég hélt að mér myndi gera... Bara æðislegt kvöld sem varð úr þessu.. En ég nenni ekki meiru í bili er orðin soldið þreytt, svaf ekki mikið í nótt Og ég kann ekki að blogga, hugsa að ég fari bara að horfa á notebook, langt síðan ég hef horft á hana.. Heyrumst.. -SteineyNinna
»
25.09.2007 22:22:49 / Steiney
Ég sit hérna að husa af hverju þar lífið að vera svona grimmt? Sit kvöld eftir kvöld í hugsunum mínum og hugsa, ekkert að gera og ekki neitt.. Allt sem mig langar í veit ég að ég fæ aldrei, allt er að klikka og mig langar bara ekki til að vera hérna á Ísó í skóla. Langar til að verða lítil stelpa sem þarf ekki neitt að hugsa annað en að þurfa að leika sér við vini sína. Þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur af neinu og vera bara barn. Held að enginn viti hvað mig langar mikið að fá mömmu og ömmu bara til að flytja á Ísafjörð þannig að ég hafi þær alltaf bara hjá mér, það er ekkert svo gaman að búa á vist sem maður þekkir ekker svo marga á þótt að þetta sé lítil vist, þá er ekkert gaman að loka sig alltaf inni í pínulitlu herbergi með sitt dót í og hugsa að þetta er það sem maður býr við í vetur, mig langar að vera heima, ég er ekki með heimþrá né neitt þannig, mig langar bara svo mikið að hafa allt heimilið mitt og vera heima, þar sem ég get verið frjáls og gert það sem mér sýnist, bakað ef mig langar og þess háttar. Tilfiningar mínar fara upp og niður þessa dagana, aðallega er ég eitthvað leið og niðurdregin, og ég veit ekki afhverju. Allt eitthvað að klikka, eins og núna er hleðslutækið við tölvuna eitthvað að stríða mér og það þarf ekki að segja liggur við neitt við mig þá verð ég fúl og ekki í góðu skapi. Veit ekki af hverju ég er að láta svona. Kannski á ég bara eitthvað erfitt andlega aldrei að vita, ég gæti verið eitthvað rugluð, veit ekki hvað ég hef það gott eða eitthvað í þá áttina. En ég veit það að ég á bestu mömmu í heiminum sem mér allt það besta og hjálpar mér í öllu sem ég þarf hjálp í og bestu ömmu í heiminum sem er svo góð amma. Og mamma var að gefa mér lampa og alles í herbergið mitt hérna á Ísafirði til að láta mér líða betur og er ég ofboðslega glöð með það en núna er það eina sem mig langar í er rúmið mitt og allt það sem er heima, er virkilega að hugsa um að flytja bara heim og þá veit ég að ég hafi það gott. Kannski yrðu bara margir fengir því því ég er alltaf svo fúl og niðurdregin. Það eina sem ég hugsa núna þessa dagana, að eins og maður talar eitthvað og einhverntímann um annað fólk við annað fólk og það eina sem ég get hugsað núna að hvað þetta fólk sé að segja um mig? Það er eitthvað sem ég bara ræð ekki við að hugsa um og mér líður ekkert vel að hugsa um þetta. Maður er bara í því að gera sig að fífli hérna og þess háttar. Veit aldrei hvort þessi manneskja þoli mann eða ekki og afhverju. Þessi staður er lítill og margir vita alveg hver maður er og ég hugsa ef einhver gefur mér skrítinn svip, já ókey þessi þolir mig greinilega ekki Eins og er ég að reyna að senda ákveðinni manneskju sms og hún svarar ekki oft, en stundum gerir hún það og spyr og talar, það eina sem ég hugsa er að þegar hún fær smsið frá mér er hún að hugsa ohhh er hún að senda mér sms eða ohhh af hverju lætur hún mig ekki í friði? Þetta er það sem ég er ekki að þola, að vita ekki hvað aðrir eru að hugsa En ætla að láta þessari tilfiningaflækju enda.. Endilega kommenta þið sem náðuð í gegnum hana.. -Steiney Ninna
»
24.09.2007 23:11:51 / Steiney
Kannski tími til að blogga... Það er voðalega lítið búið að vera að gerast, ekki neitt eiginlega. Sem er ekki sniðugt. Ég er byrjuð í átaki, farin að fara í ræktina aftur, sleppti einni viku Sem var kannski ekki svo sniðugt, en búið og gert. Já það var gaman í óvissuferðinni, eins og ég sagði gerðist margt sem þar ekkert að koma á veraldarvefinn, en samt mjög fyndið. Það var tekin sængin mín og koddinn minn af mér og síðan teppið hennar ÖnnuLóu þannig ég hafði ekkert til að sofa með, þannig ég varð ansi sniðug og tróð mér á milli Önnu og Daníels og Berglindar og Gunnars, semsagt 5 og 3 hjólið Svo kallaði Gunni Jóns yfir alla þegar þeir komu í eina neftóbaks ferðina sem voru nokkuð margar, hey sjáiði þennan strák hann er með tvær stelpur og þau eru í threesome og tók sængina af okkur, haha Það var mjög fyndið. Semsagt við vorum 5 á 1 1/2 dýnu og voðalítið pláss. Þetta með neftóbakið er soldið fyndið eftir á, þið hélduð að þið væruð sloppin en ég veit að þið eigið tóbak og ég fer ekki fyrr en ég fæ tóbak, það hefur greinilega einhver verið með tóbak því þeir voru komir með tóbak daginn eftir.. Svo var bara verið í sundlauginni allt kvöldið og fram á nótt, mjög svo gaman. Margir vel í því og svona, og nokkrir drukku of hratt.. Sem var samt soldið fyndið að sjá en ekki þegar menn láku bara niður í lauginna. Svo var bara farið í morgunmat þegar maður var vakinn og keyrt heim, var með Ipodinn hennar ÖnnuLóu allan tímann og svaf, var samt að drepast úr kulda þannig Ína rétti mér lopapeysu sem hlýjaði mér.. Annar skemmtileg ferð með skemmtilegum krökkum.. Svo er bara byrjðu ný vika og vonandi verður hún fljót að líða eins og þessar sem eru búnar af skólanum, ekkert smá fljótt allt að líða. Annars er annað kvöld önnur viðureign í GettuBetur og ætli maður skelli sér ekki bara á það.. Svo á föstudaginn er Skrallið á Suðureyri, mér og mínum hlakkar sko til Annar læt ég þetta gott heita.. Skelli inn einni mynd af okkur stelpunum, tók þetta hjá Elínu Sveins.. og svo ein af Önnu Sætu En kann einhver á photoshop? Hann má sko alveg koma í heimsókn til mín og kenna mér á það. Þoli ekki þegar ég kann ekki á eitthvað, eins og ég á photoshop og vil takk fyrir læra á það
Endilega Kommenta:K Hvernig fannst ykkur ferðin, þið sem fóruð í hana??
»
22.09.2007 19:24:11 / Steiney
Þá er Óvissuferðin búin, og var ekkert smá gaman. Gerðist margt og mikið þar.. En ég nenni ekki að blogga og skelli inn nokkrum myndum úr Nýnemaferðinni. AnnaLóa og Ég Hahahaha Sunneva og AnnaLóa Fyndin leikurinn Anna sæta Snilld Og hópur 1, sem sagt við stelpurnar..
»
21.09.2007 14:25:47 / Steiney
Jæja.. Þá er komin helgi og eftir umþaðbil fimmtíu mínútur er ég að fara í óvissuferð. Berglind er að klára að pakka sig niður en ég er reddý tú gó.. Já, annars er ekkert búið að vera að gerast hérna, nema það að ég er endalaust þreytt.. Ég hef verið að fara að sofa klukkan elllefu á kvöldin og sef til korter í átta... sem er ekkert of gott, því ég sef líka daginn, leggst upp í rúm og gersamlega bara sofna og fer svo að sofa aftur um klukkan ellefu.. Og svona eru dagarnir búnir að vera í þessari viku, það hefur eiginlega verið ekkert heimanám þannig ég bara sef.. En ég ætla að taka mig á í næstu viku og vakna á morgnanna og ekki sofa um daginn. Gera eitthvað nytsamlegt úr honum Annar er Salvör komin heim frá útlandinu og gaman að hitta hana.. Hún er sko eiginlega ekkert búin að vera í skólanum finnst mér en samt er hún þar..Svo er ég svo mikill snillingur að ég er sennilegast búin að týna I-podinum og Veskinu mínu sem er ekki gott!! En vonandi finnst hann.. annars er ég glötuð...En ætla að láta þetta duga í bili..
»
17.09.2007 23:52:01 / Steiney
»
10.09.2007 15:19:44 / Steiney
Jæja kannski maður ætti að fara að gera eitthvað á þessari blessuðu síðu Það er ekkert mikið að frétta af mér nema það að ég er byrjuð í MÍ og er það bara gaman Bý á vistinni.. Með Berglindi í næsta herbergi við mig og er bara gaman hjá okkur.. Það er reyndar soldið að læra á hverjum degi og skilaverkefni að hellast inn og ritgerðir og alles.. Bara gaman þegar allt er búið.. Það er búið að busa okkur inn í þennan skóla og var það bara gaman, jafnvel á meðan því stóð.. Það er svo mikil umræða í gangi út af þessu, þá sérstaklega 2.árs nemarnir sem eru fúlir því það á að það er búið að banna svona busun.. Næsta busun á að vera menningarleg, eða siðferðisleg eða eitthvað álíka.. Svo eftir busunina var Busamatur og myndband sýnt úr busunninni og myndir.. ekkert smá gaman að sjá þetta.. Eftir matinn var farið á busaball og kom Dýrleif elskan og gisti hjá mér og var það geggjað gaman, og kom auðvitað með okkur á ball Linkur á myndbandið: http://www.youtube.com/brynjolfuroli Það eyddist allt út sem ég var búin að blogga...  En já.. Semsagt eftir ballið fórum við inn í fjörð í eftir”partý” sem var já frekar slappt.. Allir voru sofandi eða að sofna.. En kvöldið var mjög skemmtilegt.. En svo var bara skólavika og var hún fljót að líða.. Á föstudaginn tókum við þátt í Ruddabolta sem var mjög svo gaman.. En við vorum nú engir tuddar, allavegna ekki miðað við strákana. Svo eftir kvöldamat var lokahóf fyrir þá sem voru í ruddaboltanum.. og var það mjög gaman ógleymanlegt kvöld.. Salvör datt sem var víst voðalega fyndið, missti af því En svo gisti Salvör hjá mér og Berglind gisti bara hjá okkur í mínu herbergi. Svo er bara komin ný skólavika eftir skemmtilega helgi, en hún verður fljót að líða því það eru bara tveir skóladagar eftir af vikunni.. Það er Nýnemaferð, reyndar skildumæting, en það verður farið á Núp og gist, verðum allavegna sólarhring... Ég vona að þetta verði bara gaman.. Ég veit annars ekki hvort ég fari heim, mjög sennilega fer ég heim á næstu helgi, eitthvað að kíkja á Ömmu og Mömmu Annars kemur svo skólavika og eftir hana á föstudeginum verður skrallið.. Og held ég að það verði bara mjög gaman  Er samt að hugsa um að láta þetta nægja í bili, búin að blogga tvö stór blogg Svakalega dugleg.. -SteineyNinna Væri alveg til í komment... J 
»
02.08.2007 23:31:21 / Steiney
Jæja ætla að reyna að vera með þessa síðu...
Í fyrsta lagi er sumarið alveg að verða búið og það er kominn
Ágúst, Er búin að vera að vinna í sumar en ekkert brjálað, er
alltaf í sjoppunni og er það fínt.. Verð vonandi að vinna alveg
þangað til að skólinn byrjar, væri alveg til í smá frí áður en hann
byrjar en maður verður að eiga pening fyrir veturinn... verð á
vistinni og er búin að fá að vita meira að segja í hvaða herbergi
en man ekki númerið..
Á síðustu helgi fórum við mamma á Akranes og á Grundardaga, þar
var eiginlega bara hangið hjá Höddu minni og Emil mínu, þau eru
alltaf yndisleg enda sakna ég þeirra ekkert smá mikið, væri alveg
til í að flytja til þeirra En á næstu helgi er stefnan tekin
á Dalvík, nánar tiltekið Fiskidaga á Dalvík og held ég að það verði
nokkuð gaman, verð reyndar að vinna um Versunnarmannahelgina en það
er allt í lagi, kemst í útilegu á laugardaginn og fer ef það verður
gott veður.. Mamma keypti nefnilega allt í útilegu um daginn,,
keyptum regnhlífar í dag þannig við erum til í slaginn, bæði um
helgina ef við förum og líka á Dalvík...
Hildur kom heim frá Eistlandi um daginn og var ferðin víst svaka
skemmtileg, og það nýjasta nýtt er að Magga Rós er að flytja frá
firðinum fagra.. En vonandi gengur henni bara betur á Patró
en hennar verður saknað héðan..
Nenni ekki meir í bili þannig heyrumst vonandi
fljótt..
-SteineyNinna....
»
21.06.2007 23:31:22 / Steiney
Á maður ekki líka að hafa
svona...
Endilega geriði þetta..
Takk:K:K;**;**
Elsku_______.
Þú ert með falleg/an ______.
Þú lætur mig_______.
Þú ættir að_______.
Dag einn mun ég ______.
Þú og ég = ________.
Ég ef sæi þig núna myndi ég __________.
Ég vil________ þig/þér.
Ég myndi byggja _______ bara fyrir þig.
Ef ég gæti sungið hvaða lag sem er fyrir þig. væri það
_________.
Við gætum __________ undir stjörnunum
Kveðjur,
_______________
(P.S. ______________.)
Mundiru kyssa mig?
[] ójá!
[] já
[] nei
[] kannski
[] búin að því
Er ég aðlaðandi?
[] ónei!
[] heit/ur
[] ágæt/ur
[] sæt/ur
[] æðisleg/ur
[] Sexy
[] ljót/ur
Helduru að ég sé hrein/nn?
[] já
[] Nei
[] Veit ekki
Nefndu eitthvað eitt sem að þú myndir gera með mér
________________________
Ég er…
[] Vinur
[] Smá skot
[] Kærasta/kærasti
Myndiru tala við mig ef að þú værir að sjá mig í fyrsta
sinn?
[] já
[] nei
[] kannski
Þú vilt…
[] Vera með mér
[] Kúra með mér
[] Spjalla við mig
[] Hitta mig
[] Gera eitthvað saman
Ætlar þú að setja þetta á bloggið þitt svo að ég geti gert þetta
við þig?
[] já
[] nei
»
Síður: 1 2
|
Dagsetning
23. febrúar 2012
|